Fundi frestað
Af óviðráðanlegum orsökum er fundi stjórnar Mannauðssjóðs Samflots frestað til þriðjudagsins 4. mars n.k.
Af óviðráðanlegum orsökum er fundi stjórnar Mannauðssjóðs Samflots frestað til þriðjudagsins 4. mars n.k.
Fundur stjórnar Mannauðssjóðs Samflots verður haldinn föstudaginn 28. febrúar 2014. Umsóknarfrestur var til 15. febrúar. Gefinn var frestur til að leggja inn umsókn til 17. febrúar 2014 þar sem 15. febrúar bar upp á laugardag.
Næsti fundur er fyrirhugaður í lok maí. Umsóknarfrestur fyrir þann fund er til 15. maí 2014
Næstu fundir sjóðsins verða í lok eftirfarandi mánaða: ágúst og nóvember 2013. Vinsamlega athugið að skila þarf inn umsókn ásamt öllum tilskyldum gögnum fyrir 15.ágúst og 15.nóvember. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma sem umsóknarfrekstur kveður á um í viðkomandi mánuðum.
Stjórn sjóðsins tók fyrir starfs og úthlutunarreglur sjóðsins á stjórnarfundi 27.2.s.l. Nýjar reglur taka gildi þann 1.3.2013. Hægt er að kynna sér hinar nýju reglur undir eyðublöð hér til hliðar.
Næsti umsóknarfrestur stofnanna til Mannauðssjóðs SAFMLOTS er 15.maí 2013. Umsóknir sem berast fyrir þann tíma eru lagðar fyrir stjórn sjóðsins í lok maí. Öll umbeðin gögn þurfa að berast með umsókn til að hún verði tekin fyrir. Allar upplýsingar um umsóknarferlið er á heimasíðunni undir Eyðublöð og þar undir starfsreglur. Umsjónarmenn umsókna eru beðnir um að kynna sér reglur sjóðsins vel.
Næsti umsóknarfrestur stofnanna til Mannauðssjóðs SAFMLOTS er 15.nóvember 2012. Umsóknir sem berast fyrir þann tíma eru lagðar fyrir stjórn sjóðsins í lok nóvember.
Öll umbeðin gögn þurfa að berast með umsókn til að hún verði tekin fyrir. Allar upplýsingar um umsóknarferlið er á heimasíðunni undir Eyðublöð og þar undir starfsreglur. Umsjónarmenn umsókna eru beðnir um að kynna sér reglur sjóðsins vel.
Í reglum Mannauðssjóðs SAMFLOTS segir: Sjóðsstjórn heldur fundi að jafnaði þriðja hvern mánuð og er umsóknarfrestur: 15. febrúar, 15. maí, 15. ágúst, 15. nóvember. Umsóknir sem lagðar eru fyrir fund eru afgreiddar í lok viðkomandi mánaða.
Umsóknarfrestur fyrir maí fund er því liðinn. Allar umsóknir er hafa borist með fullnægjandi gögnum verða lagðar fyrir fund stjórnar Mannauðssjóðs SAMFLOTS í lok maí.
Næsti umsóknarfrestur er til og með 15.ágúst 2012.
Þar sem umsóknir í sjóðinn hafa verið umfram áætlanir eru samþykktir styrkir greiddir út til stofnanna um það bil þremur mánuðum eftir að reikningar og greinargerð hafa skilað sér til sjóðsins að verkefni loknu, eða eftir stöðu sjóðsins hverju sinni.
Ánægjulegt er að stofnanir nýti sjóðinn svo vel til starfsþróunar sinna starfsmanna, og þakkar sjóðurinn fyrir biðlundina
Launagreiðendur þurfa að standa skil í sjóðinn frá 1.mars 2010. Sé ekki búið að skila inn skilagreinum eða greiðslum frá því tímabili geta launagreiðendur átt von á því að dráttarvextir leggjist á iðgjöld til sjóðsins, ásamt innheimtukostnaði.
Frestur til að ganga frá vangreiddum iðgjöldum til sjóðsins er til 1.júní 2012.
Í flipanum eyðublöð er að finna uppfærðar starfsreglur sjóðsins sem tóku gildi þann 1.janúar 2012.
Stofnanir eru hvattar til að vanda umsóknir og fylla út alla reiti umsóknar